Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Friday, August 18, 2006

Loksins loksins !

Jæja, það kom að því. Steingrímur loksins kominn aftur í heimsókn :-) Ég sótti nýklipptan töffara í Mosó, ekkert smá fyndið að sjá hann svona hárlausan :) Við komum við í Bónus á leiðinni heim og keyptum grillaðan kjúkling í kvöldmatinn. Það tókst að koma nokkrum skeiðum af mat ofan í litla karlinn og lyfin flutu þar með. Ég sauð brokkolí með kjúllanum og virtist honum finnast þetta allt í lagi samsetning. Svo fór litli karl að skæla smá og var alveg sama hvað ég gerði, hann var alltaf að smá væla eitthvað. Loks prófaði ég að leggja hann í rúmið og þá þagnaði hann um leið, hæstánægður ! Aumingja karlinn hefur verið orðinn svona þreyttur. Hann var sofnaður kortér yfir níu, sem er mjöög seint miðað við fyrri heimsóknir ! Verður spennandi að sjá hve lengi hann sefur !

1 Comments:

At 3:21 PM, Blogger Védís said...

Gaman að sjá að litli gaurinn er aftur mættur á svæðið.
Maður fylgist alltaf með hér á síðunni.

 

Post a Comment

<< Home