Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Saturday, August 19, 2006

Góður nætursvefn og óvæntur blundur

Steingrímur svaf mjög vel í nótt þrátt fyrir mikinn hósta. Hann rumskaði 3 sinnum grátandi, en sofnaði aftur strax og þáði ekki einu sinni snudduna. Hann sofnaði snemma en vaknaði ekki fyrr en klukkan 8 ! Jahérna ! Morgunmaturinn flaug ofan í herrann, hafragrautur greinilega á vinsældarlistanum :-) Svo tók við könnunarleiðangur um íbúðina, bæði í minni fylgd gangandi og svo á eigin spýtum. Um klukkan ellefu fór ég að hafa til hádegismat, en kl. hálf tólf þegar hann var tilbúinn þá sá ég að minn maður var með hálflokuð augun. Svo þegar ég setti hann í stólinn bara steinsofnaði hann ! Ég tók hann því og lagði inn í rúm og hádegismaturinn fékk að bíða þar til klukkan 1. Svo erum við að búa okkur undir að leggja af stað í bústað. Meira á morgun :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home