Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Wednesday, November 22, 2006

Lítill gaur mætir í langa heimsókn

Jæja, ég sótti litla karlinn í Mosó í dag. Foreldrarnir eru að skreppa til Prag svo ég má hafa hann fyrir mig alveg fram á mánudag :-) Hann fékk kossa og knús frá fjölskyldunni og svo brunuðum við heim á leið. Hann var frekar lystarlaus er kom að kvöldmatnum, en þó tókst mér að lokka í hann hálfan disk, með smá fortölum þó. Um áttaleytið var ljóst að minn var orðinn frekar þreyttur. Hann tölti samt um í rúminu í smá stund, var einmitt á röltinu þegar Helga Guðrún vinkona stoppaði hjá mér í smá stund. Gaurinn kíkti aðeins á hana og kreisti svo aftur augun :-) Hann var sko steinsofandi, já já einmitt. Hetjan sofnaði rétt fyrir kl. 9 og hefur sofið vært síðan. Myndavélin góða varð rafmagnslaus mér til sárrar skapraunar en ég tók mynd með símanum af krúttinu sem lá á maganum með krosslagða fætur :) Múshímúsh !

0 Comments:

Post a Comment

<< Home