Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Saturday, March 01, 2008

Góður dagur sem byrjaði helst til snemma!

Steingrímur vaknaði kl. kortér í fimm í morgun. Hann var hress - sumir aðrir voru það ekki.. Hann borðaði morgunmat um kl. 6 og lék sér hamingjusamur um alla íbúð. Um morguninn sóttum við klósettpappír sem ég er að selja til fjáröflunar fyrir ÍR og fannst honum greinilega gaman að skreppa í bíltúr. Hann borðaði vel í hádeginu og svo eyddum við deginum hér í rólegheitunum enda frúin ansi syfjuð. Hann borðaði ýsu í brokkólí í kvöldmatinn og borðaði mjög vel. Hann sofnaði kl. 19:45 og sefur vonandi aaaðeins lengur en í gær!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home