Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Friday, September 26, 2008

Hnoðkarl leikur sér í sófa :)

Það var sprækur gaur sem ég sótti á leikskólann. Þegar ég stoppaði aðeins til að tala við starfsfólkið var ég bara dregin af stað í áttina að dyrunum :) Engin þolinmæði með svona blaðri :) Er heim kom brunaði hann strax að eldhúsdyrunum sem voru lokaðar og opnaði þær. Það er bara partur af rútínunni að taka einn rúnt í eldhúsinu þegar hann kemur hingað :D Svo fór hann inn í stofu og fór að reyna að klifra í stólunum og kúra í þeim. Mamma kom aðeins við með vítamín og fékk auðvitað knús að launum :D Svo fór minn að leika sér í sófanum. Og hann hnoðaðist og hnoðaðist, prófaði fullt af stellingum og fór upp og niður úr honum. Mjöög gaman hjá unga manninum :D Klukkan sjö borðuðum við kvöldmat og þá tók gæinn hressilega til matar síns. Tveir diskar af ýsu, stöppuðum kartöflum og soðnu grænmeti ! Nú er búið að þvo herranum, tannbursta og setja hann í náttföt. Hann er samt enn hér á röltinu hinn hressasti, stoppar aðeins til að horfa á sjónvarpið með mér :) Prófum að kíkja á rúmið ef hann fer eitthvað að slappast :)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home