Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Friday, October 17, 2008

Þreytt lítil mús

Ósköp voru sumir nú þreyttir í dag. Ég sótti hann heim í Mosó og fékk þær fréttir að hann hefði borðað frekar lítið á leikskólanum. Hetjan litla hafði fengið sprautu í fimm ára skoðun í dag sem örugglega var ekki til að hressa hann. Við fórum svo heim og slöppuðum af en herrann var ansi daufur. Vildi helst liggja á grúfu hreyfingarlaus. Það var ekki borðað mikið af kvöldmatnum en nokkrar skeiðar tókst þó að gabba inn fyrir varirnar sem svo voru herptar aftur og ekki séns að opna þær aftur. Mér til undrunar var hann lengi að sofna þrátt fyrir hversu syfjaður hann virtist vera, lá lengi í rúminu og rúllaði sér til áður en hann sofnaði. Hefur sofið sætt og rótt frá kortér yfir átta.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home