Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Saturday, November 10, 2007

Prílari í stuði

Eftir nokkuð órólega nótt vaknaði herrann með látum rétt um kl. 6. Eftir morgunmat fór hann að róast og rölti af stað um íbúðina. Um kl. hálf ellefu kom Kristín Anna í heimsókn með litla son sinn og var svo bráðgóð að mæta með súkkulaðihrísköku. Hmm, allt í einu stóð einhver spenntur upp við stólinn minn og togaði hendina á mér að munninum á sér. Namminamm. Ekki spillti kakan fyrir matarlystinni, ég gat sýnt gestinum hversu miklir mathákar sumir geta verið með því að moka Gríms plokkfisk í botnlausan gaur. Henni þótti mikið til koma !! Svo byrjaði minn að príla. Upp í sófa, upp í stólinn við hliðina á sjónvarpinu og upp á stólana við borðstofuborðið. Þar var hann svo djarfur að standa bara uppi á stólnum !!! Eftir að Kristín fór sofnaði unginn í tæpan klukkutíma. Hann var svo að dunda sér fram að kvöldmat en þegar ég kom að ná í hann í stólinn hafði hann sofnað !!! Ég vakti hann strax aftur en þó hann hafi í mesta lagi sofið í 2 mín þýddi þetta stuð í rúminu fram eftir kvöldi ! En hann gafst upp að lokum :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home