Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Friday, November 09, 2007

Kvöldhress karl

Þegar ég kom að sækja litla manninn í Mosó í dag var hann frekar aumur og skældi mikið. Það lagaðist þegar við vorum komin heim. Hann fór strax á rölt um alla stofu og var eiturhress. Þegar kom að kvöldmatnum borðaði hann fullan disk af ýsu með brokkolí. Eftir matinn chilluðum við í stofunni og herrann brosti og hló milli þess sem hann labbaði meðfram húsgögnunum. Svo var hann tannburstaður og færður í náttföt, þvínæst lagður í rúmið. Þá fyrst var gaman, hann stóð uppi í rúminu og spjallaði í 20 mínútur. En um kl. 21 gafst hann loksins upp og sefur sætt :-)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home