Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Sunday, November 11, 2007

Syfjaður sunnudagur

Steingrímur svaf illa aðfaranótt sunnudagsins. Hann hrökk upp með ópum hvað eftir annað, vaknaði loks kl. rétt rúmlega fimm. Þá var ég ekki búin að sofa dúr. Hann var svo dálítið órólegur allan morguninn en borðaði mjög vel, ýsu í brokkolísósu ! Duglegur karl :D Um hálf þrjú sofnaði hann eftir nokkurn pirring og sváfum við saman til rúmlega fjögur. Hann náði svo að dotta í smá stund þegar ég var að útbúa kvöldmatinn og var frekar svekktur yfir því að vera vakinn. Til allrar lukku spillti það ekki lystinni, hann hámaði í sig ratatouille :-) Svo var bara stuð á mínum frá sjö til tíu. Brunaði um alla íbúð í góðu skapi. En um tíu skreið hann upp í rúmið hennar Hildu og steinsofnaði þar !! Vaknaði ekki þegar ég setti hann í náttföt og í rúmið :D Þegar maður er þreyttur er maður þreyttur !!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home