Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Sunday, December 02, 2007

Lítill kökugrís :-)

Aftur svaf herrann lengi, alveg til tuttugu mínútur yfir sjö ! Hann var órólegur og skældi í um 40 mínútur. Síðan kom hvert fallbyssuskotið eftir annað og eftir það var hann glaður og ánægður. Eitthvað er nú Óli Lokbrá að ofsækja ungann því hann sofnaði kl. 11 og svaf til eitt ! Kl. 4 fórum við í skírn hjá litlu frænku minni sem fékk nafnið Arna Rún. Steingrímur var afar hrifinn af veitingunum og sníkti hjá Hildu og mömmu meðan ég var að sækja á diskinn :-) Það kom því ekki á óvart að lystin var lítil þegar kom að kvöldmatnum. Hann var orðinn líka ansi syfjaður og var steinsofnaður fyrir kl. 8!

0 Comments:

Post a Comment

<< Home