Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Saturday, December 01, 2007

Svefnpurka aldarinnar

Herrann svaf til rúmlega 7 í morgun, mér til undrunar. Hann vaknaði eiturhress, spjallaði, sönglaði og hló :-) Borðaði fullan disk af graut í morgunmat og rölti svo af stað. Um kl. 9 lagðist hann niður og sofnaði ! Ég tók hann upp og reyndi að vekja hann en ekkert gekk. Ég lagði hann inn í rúm og lagði mig með honum. Hann vaknaði ekki fyrr en kl. 11!! Hann borðaði vel í hádeginu og var fantahress. Við skruppum í Kringluna eftur hádegi og þar teygði hann sig í dót í hillum og fékk að smakka ýmislegt á kynningum. Þegar heim kom tölti hann um allt, gekk með mér fram og til baka og var bara í stuði :-). Rétt fyrir 7 var hann alveg að sofa, einmitt þegar maturinn var til. Hann borðaði næstum sofandi eins og svo oft áður :-) Eftir mat var hann búinn í rúmið og sofnaði strax :D

0 Comments:

Post a Comment

<< Home