Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Sunday, March 02, 2008

Svolítið súr gaur

Herrann vaknaði kl. tíu mínútur í fimm og var ekki í góðu skapi. Framan af morgni var hann ekki hress og vildi mest liggja í gólfinu. Hann borðaði samt fullan bakka af plokkfisk í hádegismatinn. Um þrjú fórum við til Steinku með klósettpappír sem hún var að kaupa til styrktar ÍR. Þar vappaði gaurinn ánægður um og fékk koss frá hundi. Hann fékk líka gulrótarköku og kleinuhring. Þegar heim kom steinsofnaði hann og vaknaði eftir kortér. Þá var mikið um grát og gnístran tanna og ekki tókst að koma í hann miklum kvöldmat. Hann sofnaði svo aftur tuttugu mínútur í átta. Hann sefur sætt núna.. þar til fimm ;)

0 Comments:

Post a Comment

<< Home