Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Sunday, October 19, 2008

Hressari snáði með snert af strípihneigð!

Steingrímur vaknaði rúmlega hálf sjö í morgun og var bara hress. Borðaði mjög vel af morgunmatnum og fór svo á röltið. Var mun virkari en í gær, skrapp inn í herbergið hennar Hildu að hnoðast á dýnunni og fór inn á bað og opnaði og lokaði hurðinni í sífellu. Svo fann hann upp á því að klæða sig úr peysunni, mjög ánægður með það :) Hann borðaði líka mjög vel af hádegismatnum, tók í hendina á mér nokkrum sinnum til að fá mig til að moka hraðar. Eftir hádegið hélt hann áfram að svifta sér úr peysunni og reyndi að ná buxunum niður líka ! Við fórum svo að hjálpa Steinku systur að flytja. Steingrími leist vel á nýja húsið, stóð alveg í lengri tíma og skoðaði útidyrnar, vappaði svo um alla veröndina og garðinn, voða gaman :) Svo fórum við aftur í gamla húsið þar sem við fengum gott með kaffinu, herra mathákur borðaði auðvitað mikið líka þá! Hann skoðaði uppáhaldið sitt, eldhúsgólfið, mjög vel. Eins gott, nú sjáum við það ekki oftar. Freyja voffi gaf herranum votan koss þegar við komum og hafði vökult auga með unganum, greinilegt að hún vill passa hann :) Svo fórum við og sóttum Hildu sem var komin úr æfingarbúðunum um kl. 5. Þegar heim kom fór herrann á fullt og brunaði um alla íbúð. Allt í einu birtist hann í stofunni ber að ofan !! Litli strípalingurinn byrjaður aftur !! :D Var líka ánægður með sjálfan sig, glotti þegar ég klæddi hann í aftur :D Ekki leið nema stutt stund þá stóð gæinn aftur ber að ofan í eldhúsinu. Kæru foreldrar, ég sé fram á vandamál... :D Rétt fyrir kvöldmat fékk hann í magann og skældi um stund. Kvöldmaturinn var því frekar lítill í þetta skiptið og var unginn slappur fram að háttatíma. Sumir sofnuðu svo, án nátttreyju (strippari!) rétt um hálf 8 :)

1 Comments:

At 7:33 AM, Blogger Anna Stína said...

Flottur! Svaka posur sem þú tekur, eins og vaxtarræktargaur! Takk kærlega fyrir lánið á gestarúminu.

Þarf reyndar að fara á námskeið í hvernig svona rúm virka, en það er aukaatriði

 

Post a Comment

<< Home