Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Saturday, October 18, 2008

Rólegur dagur með litlum karli

Steingrímur vaknaði kl. 6:2o og borðaði tvo diska af hafragrauti í morgunmat. Þegar Hilda fór á fætur og fékk sér að borða kom hann og potaði í matinn hennar :D Ég bauð honum meira en hann var orðinn saddur :) Við fórum svo og keyrðum Hildu upp í Breiðholt þar sem hún var að fara í æfingabúðir í frjálsum. Steingrími fannst fínt að fara í bílinn og sat með krosslagðar fætur og horfði út. Þegar heim kom vildi hann helst kúra sig niður á mottunni og hlusta á tónlist. Hann borðaði mjög vel af hádegismatnum, heilan bakka af Gríms plokkfisk :D Eftir hádegi fórum við með mömmu minni að versla en gaurinn var frekar pirraður svo við drifum okkur heim. Hann kúrði sig áfram niður og var dálítið niðurdreginn, var í því að ýta mottunni til og reyndi reyndar að kippa sænginni minni úr rúminu :) Herrann borðaði svo vel líka af kvöldmatnum og hefur drukkið vel í allan dag. Hann sofnaði ekki fyrr en hálf níu og hefur sofið alveg rólegur síðan.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home