Steingrímur Páll

Síða um sætan gæja :-

Friday, May 29, 2009

Hress lítill strákur :)

Ég sótti Steingrím til Siggu frænku um hálf sex. Hann hafði verið hress á hestbaki og Eva systir hans hafði fengið að prófa líka :) Herrann brunaði bara út og niður stigann um leið og Sigga var búin að klæða hann í, var sko ekki að nenna að bíða meðan ég var eitthvað að blaðra við hana :D Þegar heim kom fengum við bara stæði úti í enda en herrann brunaði bara eftir planinu beint að réttum stigagangi. Hann tók svo rúntinn um íbúðina þegar inn kom og fór svo inn í svefnherbergi og skellti sér bak við rúmið sitt og chillaði um stund. Hildu herbergi var einnig skoðað :) Að venju var boðið upp á plokkfisk á föstudagskveldi og að venju var borðað vel :) Nær fullt box hvarf ofan í herrann. Svo var hann þrifinn og gerður tilbúinn fyrir rúmið. Hann slappaði svo af á mottunni þar til rétt fyrir átta, þá fóru augun að verða þung. Hann sofnaði kl. 8 og kúrir nú í hnút á koddanum sínum.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home